Hvernig DIRFIST konan að vera með sjálfsálit?!

Ó nei! Manneskjan segir sjálfa sig vera ómótstæðilega! FELIÐ BÖRNIN. Konur eiga alltaf að vera hógværar og niðurlútnar og þær sem meina annað mega taka við öskrandi gagnrýni!

 

Mér þykir líklegast að þetta hafi nú verið nett grín hjá stelpunni, en hugsið ykkur að hún segir þetta EFTIR að karlinn hennar hélt framhjá henni með einhverri ómerkilegri, ábyrgðarlausri barnapíu.

Ég vildi óska að ég hefði svona sjálfsálit. Rosalega þykir mér leiðinlegt að maðurinn minn getur ekki svo mikið sem gantast um einhverjar stelpur án þess að ég fari á eitthvað þunglyndissukk.

 

Við sem eigum erfitt með okkur og vitum hve mikil fötlun það er klöppum hér með fyrir Victoriu, jafnvel þótt mér sé ekkert allt of vel við hana.


mbl.is Sjónvarpsþáttur Victoriu sagður sjálfsdýrkunarsvall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

mér finnst viktoria fyndin

halkatla, 17.7.2007 kl. 18:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband